Síðastliðinn mánudag var ný FleXicut skurðarvél frá Marel gangsett í Odda hf. FleXicut kerfið sem sett hefur verið upp hjá Odda samanstendur af FleXicut skurðarvél og FleXisort afurðadreifingarkerfi. FleXicut greinir og sker burt beingarð, þunnildi og sporð með mikilli nákvæmni og hlutar svo flökin niður í bita samkvæmt óskum viðskiptavinar. FleXisort er sérhannað til þess að taka við afurðum frá FleXicut og dreifa á mismunandi afurðarlínur með nýrri vipputækni sem stuðlar að bættri hráefnismeðhöndlun.
Í frétt frá Odda hf. segir að árangur í rekstri fyrirtækisins hafi verið verið viðunandi á síðustu árum. Árið 2016 fór afkoman þó versnandi sem rekja má alfarið til styrkingar íslensku krónunnar og hækkunar á rekstrarkostnaði s.s. launa. Vegna síversnandi afkomu, aukinnar samkeppni á öllum sviðum sjávarútvegsrekstrar, hafi verið ákveðið að grípa til aðgerða til að styrkja reksturinn með því að ráðast í nokkrar kostnaðarsamar framkvæmdir.
Skipakaup og tækjavæðing
Patrekur BA 64 var keyptur til að bæta hráefnisöflun. Skipið var síðan útbúið með nýjustu tækni á sviði veiða með línu og meðferð hráefnis. Meðal annars var sett í skipið Mustad línukerfi, Rotex kerfi frá 3X á Ísafirði, andveltitankur til að bæta aðstöðu skipverja og annan tæknibúnað.
Á sama tíma var farið í endurnýjun fiskvinnslubúnaðar í fiskvinnslu félagsins með nýjum tæknibúnaði. Má þar nefna flatningsvél og roðdráttarvél frá Baader, hausara og flökunarvél frá Curio. Með þessu móti reynir fyrirtækið að ná fram sem mestri hagræðingu með aukinni nýtingu, meiri vinnsluhraða og meiri gæðum.
Kostnaður við allan þennan nýja tæknibúnað upp kominn er áætlaður tæplega 500 milljónir króna, sem verður að teljast talsverð upphæð fyrir félag af þessari stærð.