Stjórn Landssambands smábátaeigenda kom saman til fundar á Hólmavík 16. og 17. júlí. Mikil óánægja kom fram á fundinum með afstöðu stjórnvalda til beiðnar LS um hækkun aflaviðmiðunar.
Lokið er umfjöllun fundarins um strandveiðar.
Í máli fundarmanna kom fram mikil óánægja með að ráðherra og atvinnuveganefnd Alþingis hafi ekki orðið við beiðni LS sl vor um hækkun aflaviðmiðunar. Skýrt er frá þessu á www.smabatar.is þar sem einnig er að finna ályktun fundarins.