Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS), sem haldinn var í dag, 6. janúar, var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðum þorski um 5%.
Jafnframt var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningi á karfa um 7 %. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila.
Breytingin tekur gildi frá og með 6. janúar.