Karstensen skipasmíðastöðin á Jótlandi hefur smíðað fjölda íslenskra fiskiskipa og eitt þeirra er Heimaey VE sem Ísfélagið keypti notað frá Skotlandi. Nýjasta skipið í uppsjávarflota Færeyinga er hins vegar Høgaberg sem Karstensen afhenti færeysku útgerðinni Framherja í Fuglafirði nýlega. Skipstjórinn heitir Høgni Hansen.

Framherji er þriðja stærsta útgerðin í Færeyjum. Samherji átti stóran hlut í félaginu en seldi hann frá sér árið 2023. World Fishing segir frá því að Høgaberg sé hannað af skipaverkfræðingum Karstensen en útfærsluatriði unnin í samvinnu við eigendur skipsins. Skrokkurinn var smíðaður í Gdansk, þar sem Karstensen rekur einnig skipasmíðastöð, og smíðin var fullkláruð í Skagen. Framherji gerir einnig út uppsjávarskipið Fagraberg, frystitogarann Akraberg og línuskipin Stapin og Jógvan 1.

Høgaberg er hannaður sem uppsjávartogari með möguleika á veiðum í troll. Hann er 87,8 metrar á lengd og 16,6 á breidd. Hann ber 3.470 rúmmetra í 15 RSW kælitönkum

Góður aðbúnaður

Áherslan við hönnun skipsins var að hámarka gæði meðferðar og geymslu aflans sem og að lágmarka olíueyðslu. Ekki síður er lögð áhersla á góðan aðbúnað fyrir áhöfn skipsins. Hugað var að hljóðumhverfi með því að hafa svefnaðstöðu og borðsal eins fjarri skrúfu og unnt var. Við sjóprófanir kom í ljós að hávaðamengun er langt neðan við ráðlögð viðmið. Ólíkt mörgum öðrum fiskiskip um er Høgaberg með tveimur aðalvélum. Þær eru af gerðinni Bergen Diesel, B33:45L6P, 3.600 kW. Skrúfan er 4,5 metrar í þvermál framleidd af Kongsberg.