Meðal nýjunga sem kynntar voru í tilraunatankinum í Hirtshals í desemberbyrjun á síðasta ári, var nýtt Gloríu 1760 m flottrolll ,,Gloría XBreið" sem sérstaklega er ætlað til veiða á makríl, að því er fram kemur í frétt frá Hampiðjunni.

Þessi nýja útfærsla er búin að vera á teikniborðinu í nokkurn tíma og er í hlutföllum einn á hæð á móti fjórum á breidd. Í dag eru þessi troll í hlutföllunum einn á móti þremur. Núverandi troll ná 45 metra hæð og 135 metra breidd undir höfuðlínumæli en nýja útfærslan verður með 45 hæð og 180 metra breidd undir höfuðlínumæli og með því er vonast til að hægt sé að draga verulega úr aukaafla, s.s. síld, með makrílnum. Sjá nánar Hér .