Upp úr hádegi í dag var Björg, nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar hífð frá borði Brúarfoss, skipi Eimskipafélagsins í Sundahöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Björg er fjórða skipið í nýsmíðaverkefni Slysavarnafélags Landsbjargar og mun leysa af hólmi skip með sama nafni á Rifi á Snæfellsnesi. Það skip var smíðað árið 1988 og er því orðið 36 ára gamalt,“ segir í tilkynningu Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Elsta skipið 46 ára

Fram kemur að meðalaldur þeirra björgunarskipa sem eftir á að endurnýja sé 38 ár. Elsta skipið sé Hannes Þ. Hafstein í Sandgerði, sem var smíðað árið 1978 er þannig 46 ára. Yngsta skipið sem standi til að endurnýja sé Gísli Jóns á Ísafirði sem er smíðaður árið 1995 og er því 29 ára.

„Næstu daga fara fram skoðanir á Björg, í aðdraganda útgáfu haffæris skírteinis, ásamt því að settur verður í hana ýmis tækjabúnaður eins og Tetra talstöðvar,“ segir í tilkynningunni.

Einnig segir frá því að Björg verði til sýnis á ráðstefnunni Björgun 24 í Hörpu, dagana 11-13. október ásamt Jóhannesi Briem, þriðja skipinu í nýsmíðaverkefninu.

Björg hífð frá borði Brúarfoss í dag.