Útgerðarfélagið Þráinn Sigurðsson ehf. fékk núna á dögunum afhentan nýjan bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Að útgerðinni stendur Þráinn Sigurðsson og er hann jafnframt skipstjóri á bátnum.

Nýi báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 31, hefur hlotið nafnið Amanda SU 47. Hann er 8,5 brúttótonn að stærð og er í aflamarkskerfinu. Báturinn er útbúinn til neta- og handfæraveiða.  Netaspil er frá Sjóvélum.  Handfærarúllur eru 5 frá DNG.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Isuzu 6HE 375hö tengd ZF gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Raymarine frá Sónar. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12-14 stk 380lítra kör í lest.  Svefnpláss er fyrir 2-3 í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél og örbylgjuofni.