Faxaflóahafnir og Reykjavíkurborg munu greiða götu nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs undir heitinu „100% húsið“ með áherslu á haftengda nýsköpun þar sem 100% af hverjum veiddum fiski nýtist til verðmætasköpunar. Viljayfirlýsingin var undirrituð í vikunni af Gunnari Tryggvasyni hafnarstjóra, Einari Þorsteinssyni borgarstjóra og Þór Sigfússyni stofnanda sjávarklasans.

Skoða á hvort húsakostur í eigu Faxaflóahafna henti fyrir starfsemina eða hvort reist verði nýtt hús við hlið núverandi aðstöðu Sjávarklasans að Grandagarði 16. Gerð verður forsögn að nýju deiliskipulagi fyrir nýsköpunarhúsið með hliðsjón af þeim áherslum sem Faxaflóahafnir hafa til metnaðarfullrar atvinnuuppbyggingar.

Hafsækin nýsköpun á Grandanum

Faxaflóahafnir segja í frétt að þær vilji leggja sitt af mörkum til nýsköpunar í hafsækinni starfsemi svo hafnirnar á stærsta markaðssvæði landsins geti haldið áfram að þróast í takt við þarfir samfélagsins, atvinnulífsins og umhverfisins – „því þannig auka Faxaflóahafnir lífsgæði á Íslandi. Faxaflóahafnir eru þegar aðalbakhjarl frumkvöðlaseturs í Húsi Sjávarklasans, þar sem frumkvöðlar hafa nýtt sér glæsilega aðstöðu og reynst dýrmætur stökkpallur í þeirra þróun.“

„Það hefur verið okkur hjá Faxaflóahöfnum mikið ánægjuefni að horfa á vöxt sjávarklasans og þann árangur sem fyrirtæki sem þar hafa starfað eru að ná. Af þessum sökum höfum við haldið áfram að styrkja þessa starfsemi í okkar húsum og hyggjumst gera áfram. Við höfum verið að leita leiða til að rýmka um fyrir starfsemi hans og annarra fyrirtækja á Grandanum, bæði í sjávarútvegi og ferðaþjónustu en einnig nýsköpun og er þessi viljayfirlýsing áfangi í þeirri vegferð,“ segir Gunnar Tryggvason hafnarstjóri.