Þriðji báturinn af nýrri kynslóð krókaaflamarksbáta var afhentur Jakobi Valgeir ehf. í Bolungarvík nú á dögunum. Hinir bátarnir tveir, Fríða Dagmar ÍS og Hrólfur Einarsson ÍS, eru einnig gerðir út frá Bolungarvík. Báturinn kostaði um 130 milljónir króna.
Nýi báturinn, sem hefur hlotið nafnið Jónína Brynja ÍS 55, er 12,6 metrar að lengd, mælist 15 brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Jónína Brynja er af nýrri gerð Cleopatra 40B frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði og er nokkru breiðari bátur en eldri smábátar útgerðarinnar. Báturinn mun leysa af hólmi aflabátinn Guðmund Einarsson ÍS sem er af gerðinni Cleopatra 38. Jakob Valgeir gerir einnig út krókaaflamarksbátinn Sirrý ÍS og Þorlák ÍS sem er línubátur í aflamarkskerfinu.
Aðalvél Jónínu Brynju ÍS er af gerðinni Isuzu 6WG1TCX 720hö (15.7L) tengd tveggja hraða gír ZF 550ATS gír. Nýjung í þessum bát er að gírinn hefur innbyggð tvö gírhlutföll. Efra hlutfallið er notað með léttan bát úti á miðunum og neðra hlutfallið með hlaðinn bát til hafnar. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún.
Báturinn er einnig búinn vökvadrifnum Wesmar hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu. Línuspil er frá Beiti ehf. og annar búnaður til línuveiða frá Stálorku ehf. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 16 stykki af 660 lítra körum í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.