Útgerðarfélagið Salting ehf. á Bolungarvík fékk á dögunum afhentan nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.
Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Fríða Dagmar ÍS-103. Báturinn mælist 15 brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Fríða Dagmar ÍS er af nýrri kynslóð Cleopatra báta, Cleopatra 40B. Hann er nokkru breiðari bátur en Cleopatra 38 og stærri og öflugri.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Isuzu 6WG1TCX 720hö (15.7L) tengd ZF 550A gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno og JRC frá Brimrún ehf. og Sónar ehf. Báturinn er einnig útbúinn með vökvadrifnum Wesmar hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil er frá Beiti ehf. og annar búnaður til línuveiða frá Stálorku ehf. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 16 stk. 660 lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp.
Sigurgeir Þórarinsson er skipstjóri á Fríður Dagmar ÍS.