Hafist var handa við að sjósetja nýjan Börk í morgun en hann er í smíðum hjá danska fyrirtækinu Karstensens Skibsværft AS. Skrokkur skipsins er smíðaður í skipasmíðastöð Karstensens í Gdynia í Póllandi og þar fer sjósetningin fram. Í október nk. verður síðan skrokkurinn dreginn til Skagen í Danmörku og þar verður skipið fullklárað. Skipið verður sjósett án yfirbyggingar en hún verður sett á eftir sjósetninguna.
Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.
Þar segir jafnframt að sjósetningin fer þannig fram að hjólabúnaður er settur undir skipsskrokkinn og honum ekið út á stóran flotpramma sem er síðan dreginn frá bryggju og út á nægjanlegt dýpi. Sjó er síðan dælt í tanka prammans og honum sökkt nægilega mikið til að skipið fljóti. Það er síðan dregið að bryggju við skipsamíðastöðina þar sem haldið verður áfram að vinna í því.
Hinn nýi Börkur verður hið glæsilegasta skip í alla staði en það er byggt til nóta – og flotvörpuveiða. Lengd skipsins er 88 metrar, breiddin 16,6 metrar og dýptin 9,6 metrar. Stærð skipsins er 4.100 brúttótonn. Í skipinu verða tvær aðalvélar 3.600 kw hvor og ásrafall skipsins verður 3.500 kw. Þá verður í skipinu 820 kw hjálparvél. Alls verða 13 kælitankar í skipinu og til að kæla aflann verða tvö kerfi, hvort um sig 1.500 kw. Samtals verða tankarnir 3.420 rúmmetrar. Vistarverur verða fyrir 16 manns.