Undanfarna mánuði hefur verið unnið að innleiðingu á öryggisstjórnunarkerfinu Öldunni hjá áhöfnum á skipum Vinnslustöðvarinnar að því er kemur fram á vef fyrirtækisins.

Haft er eftir Lilju B. Arngrímsdóttur, mannauðsstjóra VSV, að í fyrrasumar hafi Gísli Níls Einarsson, sérfræðingur í öryggismálum, haft samband við hana og spurt hvort Vinnslustöðin vildi fá kynningu á nýrri stafrænni lausn í öryggismálum sjómanna sem hann var að þróa.

„Við vorum strax mjög jákvæð fyrir þessu verkefni sem Gísli var þarna að hefja spennandi vegferð á og í dag er orðið að öryggisstjórnunarkerfinu Öldunni. Við hjá Vinnslustöðinni þekkjum Gísla vel þar sem hann starfaði áður hjá VÍS, tryggingafélagi fyrirtækisins, í forvörnum og ráðgjöf við viðskiptavini VÍS. Gísli er drífandi og hvetjandi og hefur mjög víðtæka þekkingu þegar kemur að öryggismálum á sjó,” segir Lilja á vsv.is.

Skipverjar með app í símanum

Fram kemur að forritið sem um ræði sé smáforrit sem skipverjar hafi hlaðið upp í símana sína. Séu allir skipverjar virkjaðir í að nota kerfið. Með notkun á kerfinu verða öryggismál ekki á ábyrgð eins skipverja heldur allra.

„Með Öldunni öryggisstjórnunarkerfinu er verið að nútímavæða skipulag og framkvæmd öryggismála um borð í fiskiskipum og efla öryggisvitund sjómanna enn frekar. Kerfið setur öryggismál á dagskrá með reglubundnum björgunaræfingum, eigin skoðunum á öryggis- og björgunarbúnaði ásamt því að halda utan um nýliðafræðslu um borð. Útgerðin getur fylgst með virkni á kerfinu og framgangi mála auk þess sem til verða verkefni í kjölfar æfinga og úttekta sem kallar á eftirfylgni útgerðar,“ segir á vsv.is.

Voru hluti af notendaprófunum

Þá er haft eftir Lilju að til að hefja vegferð þeirra á innleiðingu kerfisins hafi hún fengið Sigurjón Viðarsson, skipstjóra á Þórunni Sveinsdóttur VE, til að vera henni innan handar. Innleiðingin hafi byrjað í Þórunni Sveinsdóttir VE haustið 2023.

„Skipverjarnir á Þórunni voru þá í raun orðnir hluti af notendaprófunum og þróun öryggisstjórnunar-kerfisins en þróun á svona kerfi gerist að miklu leyti með aðstoð þeirra sem nota kerfið í þágu eigins öryggis. Vinnslustöðin hefur nú fjárfest í kerfinu og eru allir skipverjar útgerðarinnar orðnir notendur að Öldunni. Gísli Níls og Gunnar, sérfræðingar í öryggismálum, funduðu með áhöfnum skipanna um kerfið og notkun þess þegar skipin komu í land fyrir sjómannadag og er kerfið þegar komið í góða notkun um borð í skipunum,” segir Lilja.

Umbylting í öryggisstjórnun til sjós

Þá er rætt við Gísla Níls Einarsson, framkvæmdastjóra Öldu, sem kveður þróunina á Öldunni enn í fullum gangi. Ýmsar nýjungar muni líta dagsins ljós í haust. 

„Til dæmis sjálfvirk rafræn þjálfunaráætlun sem minnir áhafnir á að gera reglubundnar lögbundnar björgunaræfingar og öryggisúttektir, rafræn öryggishandbók skipa og stafrænt áhættumat í Öldu-appinu. Þessar nýjungar munu umbylta allri öryggisstjórnun til sjós enn frekar. Síðan eru fleiri nýjungar í farvatninu sem snúa að notkun á nýjustu tækni svo sem gervigreind og vélnámi sem gengur út á að kerfið sé að læra af þeim hættum sem sjómenn skrá í kerfið og komi sjálfkrafa með tillögur til sjómanna um mótvægisaðgerðir til að efla öryggi um borð í skipum þeirra,“ nefnir Gísli Níls á vsv.is.

„Þetta eru allt mjög spennandi nýjungar sem við erum að þróa í samvinnu við sjómenn, öryggis-/útgerðastjóra útgerða, slysavarnaskóla sjómanna og Samgöngustofu,“ er áfram haft eftir Gísla Níls. „Það er alveg ótrúlegt hvað við höfum komist langt í þróun á Öldunni á svona skömmum tíma en það er sjómönnum og útgerðum að þakka ásamt tryggum styrktaraðilum Siglingaráð, Félag skipstjórnarmanna, Sjómannasamband Íslands, TM og Sjómennt.“

Vinnslustöðin borgaði fyrirfram

Þá segir Gísli Níls frá því að í lok síðasta árs hafi Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, 10 útgerðir og Ábyrgar fiskveiðar fjárfesti í Öldunni og svo lagt grunninn að rekstri fyrirtækisins í dag.

„Að lokum vil ég koma sérstökum þökkum á framfæri til stjórnenda Vinnslustöðvarinnar sem ákváðu síðasta sumar að borga innleiðingu á Öldunni fyrirfram, áður en að kerfið var klárt, sem gerði það að verkum að við höfum nægt fjármagn til að halda áfram með þróunina á Öldunni síðasta sumar. Eins og maðurinn sagði, það er alltaf gott að eiga Vestmannaeyinga að,” segir Gísli Níls.