© Aðsend mynd (AÐSEND)
Sigurður VE er 80 metra langur og 17 metra breiður og er afar vel búinn til veiða á uppsjávarfiski s.s. loðnu, síld, makríl og kolmunna. Aðalvélin er 4.500 kW og kæligetan er 2x1.300.000 kcal/klst. Kælitankar skipsins eru 12 og eru samtals 2.970 rúmmetrar þannig að burðargeta skipsins er mikil og styður hún vel við öfluga landvinnslu félagsins í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn.
Til gamans má geta þess að eldra skip Ísfélagsins með sama nafni var smíðað árið 1960 í Þýskalandi og var 72 metra langt og 10 metra breitt. Í því var 1.766 kW Nohab Polar aðalvél og bar skipið um 1.500 tonn í lestum sem ekki voru útbúnar til að kæla aflann.
Í frétt frá Ísfélaginu segir einnig:
Kaupin eru liður í endurnýjun á skipaflota Ísfélagsins og þáttur í hagræðingaraðgerðum þess ekki síst í kjölfar sífellt aukinnar skattlagningar stjórnvalda. Félaginu er ætlað að greiða um einn og hálfan milljarð í veiðigjöld og tekjuskatt á þessu ári. Félaginu er því nauðsynlegt að fækka skipum og auka hagræði á öllum sviðum rekstursins. Gera má ráð fyrir að hið nýja skip leysi tvö af eldri skipum félagsins af hólmi með tilheyrandi lækkun olíu- og launakostnaðar.
Skipstjóri á Sigurði VE 15 er Hörður Már Guðmundsson og yfirvélstjóri er Svanur Gunnsteinsson.
Ísfélag Vestmannaeyja hf. er elsta starfandi hlutafélag á landinu, stofnað þann 1. desember árið 1901. Það er í fararbroddi í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski og er burðarás í atvinnulífi í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn.