Hin nýja uppsjávarskip Ísfélags Vestmannaeyja, sem er í smíðum í Celiktrans í Istanbul í Tyrklandi, var sjósett á fimmtudaginn í síðustu viku, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum. Skipið verður afhent tilbúið til veiða í byrjun næsta árs.
Skipið 80 metra langt og 17 metra breitt og verður afar vel útbúið til veiða á uppsjávarfiski svo sem loðnu, síld, makríl og kolmunna.