Hafrannsóknastofnun endurnýjaði á dögunum tækjakost sinn í smá- og víðsjám. Eftir útboð á Evrópska efnahagssvæðinu var tilboð frá Medor samþykkt fyrir tvær smásjár og fjórar víðsjár frá Olympus. Eldri tæki voru komin verulega til ára sinna og hættar að standast kröfur nútímans.

Smásjárnar eru tvennskonar, þ.e. hefðbundin smásjá og viðsnúin smásjá eða það sem kallað er Inverted Microscope á ensku. Víðsjárnar eru allar af svipaðri gerð. Tvær víðsjár verða í rannsóknastofu Hafrannsóknastofnunar á Ísafirði, en hin tækin verða í i höfuðstöðvum stofnunarinnar að Fornubúðum í Hafnarfirði.

Marfló af tegundinni pontoporeia-femorata, mynd sem var tekin í einni af nýju smásjánni.
Marfló af tegundinni pontoporeia-femorata, mynd sem var tekin í einni af nýju smásjánni.

Með hverri smásjá og víðsjá fylgir myndavél sem er nýlunda sem styrkir mjög vísindastarfið. Báðar smásjárnar gefa möguleika á að skoða sýni með svonefndu Diffrential Interference Contrast (DIC) sem einnig er nýlunda við greiningar sýna hjá Hafrannsóknastofnun og ljóst að tækin eiga eftir að nýtast við rannsóknir á öllum fagsviðum og efla rannsóknir Hafrannsóknastofnunar.