Ný kuðungategund uppgötvaðist nýlega í hafinu við Ísland en slíkt er fátítt og í þessu tilviki afrakstur mikillar vinnu. Nýja tegundin hefur verið nefnd eftir fyrrum starfsmanni Hafrannsóknastofnunar Jónbirni Pálssyni og heitir Buccinum palssoni Fraussen, Delongueville & Scaillet, 2024 en tegundin hefur enn ekki fengið íslenskt nafn.
Gjöfult samstarf
Hafrannsóknastofnun hefur áður sagt frá gjöfulu samstarfi Jónbjörns og belgísku dýrafræðinginna Christiane Delongueville og Roland Scaillet. Nú hefur þessi samvinna orðið til þess að áður óþekkt kuðungategund fannst. Kuðungurinn er um 3 cm á hæð og tilheyrir ættkvíslinni Buccinum eins og beitukóngur.
Það er ekki algengt að nýjar tegundir finnist yfirhöfuð og sömuleiðis eru ekki miklar líkur á að fá tegund nefnda eftir sér. En margt býr í hafinu og allt getur gerst.
Jónbjörn starfaði um árabil við hafrannsóknir. Eftir hann liggur fjöldi greina um líffræði hafsins og er hann annar höfunda bókarinnar Íslenskir fiskar. Jónbjörn er vel að þessum heiðri kominn og óskar Hafrannsóknastofnun honum innilega til hamingju.