Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Capbreton á suðvesturströnd Frakklands.

Að útgerðinni stendur Julien Pinsolle sjómaður frá Capbreton sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.

Nýi báturinn hefur hlotið nafnið L’Accalmie II.  Hann er 17 brúttótonn af gerðinni Cleopatra 40, sem er ný útgáfa af hinum vinsæla Cleopatra 38 bát.  Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 tengd ZF325IV gír.

Siglingatæki eru frá Furuno.  Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu hans.

L‘Accalmie II er útbúinn til netaveiða og er netaspilið er frá Frakklandi.

Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 16 stk 380lítra kör í lest.  Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá til fjóra auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.

Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Capbreton allt árið. Hann hefur þegar hafið veiðar og verða 3- 4 menn í áhöfn.