Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Fraserburgh í Skotlandi.

Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Makfort. Báturinn er 10 metra langur og 11 brúttótonn. Makfort er af gerðinni Cleopatra 33. Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C90, tengd ZF286IV gír. Siglingatæki eru frá Furuno. Hann einnig útbúinn með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er gerður til gildruveiða á humri og krabba. Öryggisbúnaður er frá Viking.

Rými er fyrir 15 stk 380lítra kör í lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu.