Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra 50 bát til Gamvik í Finnmörku sem er nyrst í Noregi. Skipstjóri og aðaleigandi bátsins er Haraldur Árni Haraldsson. Bátnum var siglt frá Íslandi til Norður-Noregs um páska.
Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Aldís Lind. Báturinn er 15 m langur og 4,65m breiður og mælist 30 brúttótonn.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V222TI 800hp tengd ZF gír. Hann er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad frá Sónar ehf og FAJ ehf.
Báturinn er einnig með vökvadrifnum WESMAR hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar er sjálfstýringu hans.
Báturinn er útbúinn til línuveiða með yfirbyggðu vinnudekki. Beitningarvél og rekkakerfi fyrir 25.000 króka er frá Mustad. Línuspil og færaspil eru frá Beiti ehf. Löndunarkrani af gerðinni TMP 300L frá Ásafli ehf. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 23 stk 660 lítra og 19 stk 400 lítra kör í lest. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir sex í lúkar, eldunaraðstöðu með öllum nauðsynlegum búnaði.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar við Noreg.