Útgerðarfélagið Kambur ehf í Hafnarfirði fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Að útgerðinni stendur Hinrik Kristjánsson. Atli Freyr Kjartansson verður skipstjóri á bátnum.

Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Kristján HF-110. Báturinn er 15 brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Kristján er af gerðinni Cleopatra 38. Kristján var til sýnis á bás Trefja á Íslensku sjávarútvegsýningunni í september síðastliðnum.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 650hp tengd ZF gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún ehf. Báturinn er útbúin tveimur vökvadrifnum hliðarskrúfum sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil og færaspil er frá Beiti. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12 stk. 660 lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.