Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Nord-Lenangen í Tromsfylki í Noregi.

Kaupandi bátsins er Terje Moltubakk sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.

Báturinn hefur hlotið nafnið Sara Louise og  mælist 14 brúttótonn.  Sara Louise er af gerðinni Cleopatra 36.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D13 650hp tengd ZF V-gír.  Í bátnum er Nanni ljósavél.  Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno.

Báturinn er einnig útbúinn með tveimur vökvadrifnum hliðarskrúfum sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða og kemur veiðibúnaðurinn frá Noregi. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir fimmtán 380 lítra kör í lest. Fullkomin eldunaraðstaða auk borðsals er staðsett í brúnni, og svefnpláss er fyrir þrjá menn í lúkar, auk salernis með sturtu. Báturinn hefur þegar hafið veiðar.

Högni Bergþórsson, framkvæmdastjóri Trefja, segir að á þessu ári hafi tíu bátar verið afgreiddir frá fyrirtækinu.

„Við erum svo með mörg stór verkefni í gangi sem verða afgreidd á næsta ári,“ segir Högni.