Tommy Albertsen útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Tommy verður sjálfur skipstjóri á bátnum og reiknað er með að hann hefji veiðar á næstu dögum. Nýi báturinn heitir Skipson og er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D13 500hö tengd ZF325IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til netaveiða.
Netabúnaður kemur frá Noregi. Lest bátsins rúmar fimmtán 380 lítra fiskikör.
Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking. Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.