Það er lítið lát á afhendingum á nýjum bátum frá Bátasmiðjunni Trefjum til Noregs. Nú á dögunum fékk Piera Gaup útgerðarmaður í Noregi afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni. Piera verður sjálfur skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn heitir Barent Gadus. Hann er 10,99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn. Nýi báturinn leysir af hólmi eldri Cleopatra 36 bát sem útgerðin hefur rekið frá árinu 2014. Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 520hö tengd ZF325IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC, Olex og Simrad. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Barent Gadus er útbúinn til línu- og netaveiða. Lest bátsins rúmar 15 stk af 380 lítra fiskikörum. Báturinn er á leið til Noregs og reiknað er með að hann hefji veiðar í lok júní.