Útgerðarfélagið Sagen Fisk AS í Kjøllefjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 33 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það er Tomas Sagen sem stendur að útgerðinni. Tomas verður jafnframt skipstjóri á bátnum.

Báturinn leysir af hólmi eldri Cleopatra 31 bát sem útgerðin hefur verið með í rekstri frá 2020. Nýi báturinn heitir Tiina E. Hann er 9,99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn. Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D9 350 hö tengd ZF286IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Olex og Simrad. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til línuveiða og netaveiða. Línuspil er frá Beiti. Annar neta- og dekkbúnaður kemur frá Noregi. Lest bátsins rúmar 12 stk 380 lítra fiskikör. Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking. Setkrókur er í brú og eldunaraðstaða. Svefnpláss er fyrir allt að þrjá í lúkar. Báturinn er nýkominn til heimahafnar í Noregi og hefur veiðar á næstu dögum.