Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Le Croisic á vesturströnd Frakklands. Að útgerðinni stendur Fabrice Charlot sjómaður frá Le Croisic sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.

Nýi báturinn hefur hlotið nafnið “Ar-Tarzh II” sem þýðir “Aldan” á mál Bretóna.  Báturinn er 11 brúttótonn.  “Ar-Tarzh II” er af gerðinni Cleopatra 33. Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT(Iveco)C90 380 tengd ZF286IV gír. Siglingatæki eru frá Furuno.

Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línubúnaður er frá Able. Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 12 stk 380 lítra kör í einangraðri lest.  Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.

Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Le Croisic allt árið. Reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna í lok mánaðrins.  2-3 menn verða í áhöfn.