Landeldisfélagið Laxey í Vestmannaeyjum lauk nýlega 900 milljóna króna viðbótar hlutafjáraukningu.

Að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Laxey verður féð nýtt til að hefja undirbúning á öðrum áfanga í uppbyggingu á landeldi félagsins.

„Áfangi tvö mun bæta 4.500 tonna framleiðslu á laxi við þau 4.500 tonn sem eru nú þegar fullfjármögnuð í áfanga 1. Alls er stefnt að því að byggja áframeldið upp í sex jafnstórum áföngum,“ segir í tilkynningunni.

Hlutafjáraukning vegna mikils áhuga í fyrra útboði

Fram kemur að ákvörðunin um að fara í þessa hlutafjáraukningu hafi verið tekin vegna mikils áhuga fjárfesta í framhaldi af sex milljarða hlutafjárútboði félagsins í apríl á þessu ári. Nýir öflugir hluthafar hafi tekið þátt núna. Megi þar nefna Farvatn Private Equity og Kontrari, tvö norsk fjölskyldufélög sem hafi mikla reynslu af fjárfestingum tengdum fiskeldi.

Þá segir að uppbygging félagsins gangi vel. Seiðastöðin hafi hafið starfsemi með móttöku tveggja seiðahópa, sem dafni vel. Bygging á seiðastöðinni verði lokið í júlí og heildar framleiðslugeta verði fjórar milljónir seiða á ári.

„Seiðin verða nýtt bæði við framleiðslu á laxi til manneldis á staðnum auk framleiðslu stórseiða – en fyrsta sala á stórseiðum er áætluð sumarið 2025. Framkvæmdir á áframeldi félagsins ganga vel og var fyrsta 5000 m3 fiskeldiskerið reist í Viðlagafjöru í júní og í mars á þessu ári voru 6 stórseiða ker reist á sama svæði, sem hvert um sig rúmar 900 rúmmetrar.“

Fjármagnað af fjölskyldu Sigurjóns Óskarssonar að mestu þar til í ársbyrjun

Þar til í byrjun árs 2024 var Laxey aðallega fjármagnað af fjölskyldu Sigurjóns Óskarssonar að því er segir í fréttatilkynningunni. Með sex milljarða króna hlutafjáraukningu í apríl og nú 900 milljóna króna viðbót hafi félagið tryggt sterka eiginfjárstöðu og öflugan hóp fjárfesta með mikla sérþekkingu og fjárhagslegan styrk til að stuðla að frekari vexti.

„Áframhaldandi eftirspurn frá öflugum fjárfestum endurspeglar styrk verkefnisins í heild sinni. Samhliða því að gera okkur kleift að hefja undirbúning á öðrum áfanga, koma þessir öflugu fjárfestar með aukna reynslu og þekkingu í verkefnið,“ er haft eftir Lárusi Ásgeirssyni, stjórnarformanni Laxeyjar.

„Nú er það undir okkur komið að framkvæmdir og uppbygging lífmassans haldist áfram á réttri braut. Það er í raun ótrúlegt að fylgjast með daglegum framgangi verkefnisins og það var stór stund þegar fyrsta 5.000 rúmmetra fiskeldiskerið fyrir áframeldið var reist í lok júní, allt samkvæmt upprunalegri tímaáætlun,“ segir Lárus enn fremur.