Þar sem ekki hafa náðst samningar um veiðiheimildir úr deilistofnunum makríl, norsk-íslenskri síld og kolmunna fyrir komandi ár hefur norska sjávarútvegsráðuneytið ákveðið heildaraflamark fyrir Norðmenn í þessum tegundum til bráðabirgða.
Samkvæmt því er norski kvótinn fyrir makríl 150.000 tonn, fyrir norsk-íslenska síld 255.277 tonn og fyrir kolmunna 190.000 tonn.
Tekið er fram að vegna samningsleysisins megi aðeins veiða í norskri lögsögu og á alþjóðlegu svæði.