Kjötvinnslufyrirtækið Norðlenska hefur keypt allar fasteignir útgerðarfélagsins Vísis hf. á Húsavík. Um er að ræða frystigeymslur og vinnslusal fyrirtækisins, skrifstofur, gistiheimili og geymslur, alls um 5 þúsund fermetra, að því er fram kemur í frétt frá Visi.

Sala fasteignanna var tekin í kjölfar ákvörðunar Vísis um að flytja starfsemi sína frá Húsavík til Grindavíkur, en forsvarsmenn Vísis lögðu mikla áherslu á að áfram yrði atvinnurekstur í húsnæðinu.

Með kaupunum mætir Norðlenska þörf fyrirtækisins fyrir aukið frystirými á Húsavík en um leið skapast tækifæri fyrir frekari starfsemi fyrirtækisins á staðnum sem verða tekin til skoðunar á næstu vikum og mánuðum. Starfsmannastjóri Norðlenska mun í framhaldi af kaupunum ræða við þá starfsmenn sem ekki þáðu störf hjá Vísi í Grindavík um möguleika þeirra til vinnu hjá félaginu.

Norðlenska er eitt stærsta og öflugasta framleiðslufyrirtæki landsins á sviði kjötvöru. Fyrirtækið er með starfsstöðvar á Akureyri, Húsavík, í Reykjavík og á Höfn í Hornafirði. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Akureyri einnig stórgripasláturhús og kjötvinnsla. Á Húsavík er sauðfjársláturhús og kjötvinnsla. Fyrirtækið er ennfremur með söluskrifstofu á höfuðborgarsvæðinu og sauðfjársláturhús á Höfn.

Hjá Norðlenska eru um 190 heilsársstörf, þar af eru 45 heilsársstörf á Húsavík.