„Nú er veitt í Smugunni og þar var alveg glimrandi veiði á meðan við vorum úti. Skipin voru að fá fá allt upp í 400 tonn í holi,“ segir Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti í viðtali á vef Síldarvinnslunnar.
„Í síðustu viku datt makrílveiðin í íslensku lögsögunni niður og fannst fiskurinn ekki þrátt fyrir mikla leit skipanna. Þá var haldið út í Smugu og í lok vikunnar gengu veiðar þar afar vel. Síldarvinnsluskipin og Samherjaskipin, sem eru í veiðisamstarfi, fengu góð hol og kom Beitir NK til Neskaupstaðar í gær með 1.850 tonn og Margrét EA hélt til Egersund í Noregi með 1.750 tonn,“ segir á svn.is.
Fram kemur að Vilhelm Þorsteinsson EA sé á landleið með tæplega 1.500 tonn. Því séu Barði NK og Börkur NK einu skipin í samstarfinu sem nú séu að veiðum.
Smærri makríll en í lögsögunni
„Skipin í okkar samstarfi voru að veiðum í syðri hluta Smugunnar, um 350 mílur austnorðaustur af Norðfjarðarhorni. Þarna veiðist miklu smærri fiskur en sá sem veiddist í íslensku lögsögunni,“ er haft eftir Tómasi. Fiskurinn sem þarna fáist sé mikið 370 til 400 grömm en fiskurinn sem veiddist í okkar lögsögu hafi gjarnan verið 500 til 600 grömm.
„Mér finnst vertíðin hafa gengið býsna vel til þessa og það er afar mikilvægt hve mikið hefur veiðst í íslenskri lögsögu. Svo bíður norsk – íslenska síldin handan við hornið og það verður spennandi að fá að glíma við hana,“ segir Tómas Kárason.