Tekið hefur verið á móti þriðja laxahrognaskammtinum hjá landeldisfyrirtækinu Laxey í Vestmannaeyjum.

Að því er kemur fram á vefsíðu Laxeyjar barst fyrirtækinu í þetta sinn skammtur frá Benchmark Gentics upp á 900 þúsund hrogn. Það sé 75 prósent af heildarframleiðslugetu stöðvarinnar.

Lífmassanum vegnar vel og fullur skammtur væntanlegur

„Í seiðastöðinni eru núna lífmassi í þremur kerfum af fjórum, klakstöðinni, RAS1 og svo RAS2, og vegnar lífmassanum mjög vel í öllum stigum framleiðslunnar,“ segir á laxey.is.

Fjórði skammturinn er sagður muna koma í haust og verði hann fyrsti heili skammturinn, 1.200 þúsund hrogn. „Mun það marka mikil tímamót hjá LAXEY sem mun þá vera með framleiðslu á öllum stigum seiðastöðvarinnar.“