Alls bárust nítján umsóknir um starf Fiskistofustjóra . Umsóknarfrestur rann út 28. febrúar en Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur sett Áslaugu Eir Hólmgeirsdóttur í embættið frá deginum í dag til 30. apríl 2020. Ráðherra skipar jafnframt nefnd til að meta hæfni umsækjenda og mun nefndin skila greinargerð til ráðherra.

Eyþór Björnsson sagði starfi sínu sem Fiskistofustjóri lausu fyrr á árinu og hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE).

Umsækjendurnir eru:

Admir Mrati, verkamaður
Arnar Ágústsson, fyrsti stýrimaður
Arnljótur Bjarki Bergsson, sjávarútvegsfræðingur
Álfheiður Eymarsdóttir, stjórnmálafræðingur
Bergur Elías Ágústsson, framkvæmdastjóri
Davíð Jónsson, sjávarútvegsfræðingur
Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, forstöðumaður
Gísli Hrannar Sveinsson, stjórnunarfræðingur
Gunnar Hrafn Hall, sjómaður og verkfræðingur
Hreiðar Eiríksson, lögfræðingur
Jóhann Friðberg Helgason, framkvæmdastjóri
Njáll Ragnarsson, sérfræðingur
Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri
Sigurður Jóhannesson, umhverfis- og auðlindafræðingur
Svavar Halldórsson, ráðgjafi
Svanhvít Pétursdóttir, viðskiptafræðingur
Þórður Heimir Sveinsson, lögmaður
Dr. Ögmundur Knútsson, ráðgjafi