Netarall Hafrannsóknastofnunar, eða stofnmæling á hrygningarslóð þorsks, hófst 2. apríl og taka sex bátar þátt í verkefninu: Saxhamar SH í Breiðafirði, Magnús SH í Faxaflóa, Friðrik Sigurðsson ÁR á svæðinu frá Reykjanesi að Þrídröngum, Ársæll Ár frá Þrídröngum að Skeiðarárdjúpi og Hvanney SF frá Meðallandsbugt að Hvítingum, Þorleifur EA fyrir norðurlandi.

Um 45-60 trossur eru lagðar á hverju svæði og er þeim dreift innan svæða á helstu hrygningarslóðir þorsks. Á hverju svæði er helmingur lagður í fyrirfram ákveðna punkta, svokallaðar fastar stöðvar en hinn helmingurinn er lausar stöðvar sem skipstjórar ákveða hvar skulu lagðar.

Markmið verkefnisins er að safna upplýsingum um lengdar- /þyngdasamsetningu, kynþroska, og vöxt eftir aldri á helstu hrygningarsvæðum þorsks. Einnig að meta árlega magn kynþroska þorsks er fæst í þorskanet á hrygningarstöðvum og meta breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum.