Netagerðamenn óttast um sinn hag ef engin verður loðnuvertíðin eins og flest virðist stefna í annað árið í röð. Vinna við loðnunætur og uppsetningu þeirra er stór hluti starfseminnar og fer yfirleitt fram í ágúst og fram í janúar ár hvert. Sú vinna lá niðri síðasta haust þar sem allar nætur voru ónotaðar í loðnuleysinu 2023/2024 en eru þá klárar í bátana ef loðna finnst núna á endasprettinum.

„Ef það er ekki loðnuvertíð þá erum við hérna hjá Egersund að missa úr 4-6 mánuði í vinnu. Með sæmilegri loðnu vertíð, 200-300 þúsund tonna vertíð, þá erum við byrjaðir að fara yfir næturnar í ágúst og endum það í byrjun janúar. Útlitið er því ekki gott. Næturnar voru allar klárar fyrir síðustu vertíð sem engin varð og svo er bara vonast eftir að þær komist í sjó núna þótt útlitið sé ekki sérstaklega bjart,“ segir Stefán Ingvarsson, framkvæmdastjóri Egersund Ísland á Eskifirði.

Ekki gefið upp alla von

Hann segir að mikil vinna hafi tapast vegna þessa í fyrra og það sé að endurtaka sig núna. Egersund sér um loðnunætur fyrir nokkrar af stærstu uppsjávarútgerðum landsins, þ.e. Síldarvinnsluna, Eskju, Gjögur og Samherja að einhverju leyti líka. Fyrirtækið hefur líka haslað sér völl innan fiskeldis en Stefán segir verkefnin þar að mestu liggja í viðgerðum og lítil efnissala því samfara. Hann hefur þó ekki gefið upp alla von enn um að loðna finnist. „Eigum við ekki að gefa þessu séns fram í 10. febrúar áður en við leggjumst í eitthvert þunglyndi,“ segir Stefán.