Landhelgisgæslunni barst kl. 00:41 beiðni um aðstoð frá netabátnum Tjaldanes GK, eftir að vélarbilun varð  um borð og allt rafmagn sló út. Tíu manns voru í áhöfn skipsins en það var staðsett milli Dýrafjarðar og Önundarfjarðar.   Óskað var eftir aðstoð Gunnars Friðrikssonar, björgunarskips Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Ísafirði.

Björgunarskipið var komið á vettvang laust fyrir klukkan fjögur og voru bátarnir komnir til hafnar á Flateyri kl. 08:24. Aðgerðin gekk ágætlega, gott veður var á svæðinu en nokkur undiralda, þannig að siglingin gekk hægt, einnig var mönnum um borð í Tjaldanesi orðið kalt þegar komið var til hafnar, að því er segir á vef LHG