Icelandic Group hefur komist að samkomulagi um sölu á dótturfélagi sínu, Ný-Fiski, til Nesfisks ehf. Vörumerki félagsins ´Icelandic Seafood´ fylgir ekki með í kaupunum.
Salan á Ný-Fisk er liður í stefnu Framtakssjóðs Íslands, sem á Icelandic Group að fullu, að einfalda rekstur félagsins en nýlega seldi Framtakssjóðurinn dótturfélag sitt á Spáni til framleiðanda á Íslandi.
Nesfiskur hefur undanfarin 30 ár verið með meginstarfsemi sína í Garði en einnig rekið frystingu og ferskfiskvinnslu í Sandgerði. Hefur félagið lýst yfir áhuga á að halda rekstri Ný-Fisks áfram í Sandgerði.
6.000 tonn á ári
Ný-Fiskur sérhæfir sig í vinnslu og sölu á ferskum sjávarafurðum. Félagið nýtir um 6.000 tonn af hráefni árlega og eru tekjur fyrir árið 2016 áætlaðar um 3.000 m.kr. Stór hluti afurða er fluttur með flugi til viðskiptavina í Belgíu og annarra Evrópulanda. Ný-Fiskur rekur vel útbúna vinnslu í Sandgerði ásamt því að gera út línubátinn Von GK-113 í gegnum dótturfélag sitt, Útgerðarfélag Sandgerðis, sem er með um 800 þorskígildistonn af aflaheimildum í krókaaflamarkskerfinu. Hjá félaginu starfa um 70 manns og framkvæmdastjóri þess er Þorsteinn Magnússon.