Fyrsta tímabili strandveiða er lokið.  Veiðidagar voru 14 í maí og dugði viðmiðunarafli á öllum svæðum að A undanskildu.  Þar kláraðist aflinn 19. maí og því voru dagarnir þar aðeins 9.

Þetta kemur fram á vef LS. Þar er líka eftirfarandi upplýsingar að finna:

Ónýttur afli í maí á svæðum B, C og D færist yfir í júní og hækkar viðmiðun sem því nemur.

Alls voru 447 bátar sem stunduðu strandveiðar í maí sem er nokkru færra en í fyrra þegar 510 bátar lönduðu afla.  Aflinn nú varð 1.483 tonn sem um 500 tonnum minna en í fyrra.  Þá fækkaði löndunum um 1000 sem er fjórðungs minnkun.

Aflahæstu bátarnir á hverju svæði voru:

Svæði A:    Naustvík ST 80    7.376 kg  í     9 róðrum

Svæði B:    Fengur ÞH 207     10.594 kg  í  14 róðrum

Svæði C:    Sóley ÞH 28 8.019 kg   í  11 róðrum

Svæði D:    Hulda SF 197 8.910 kg   í  11 róðrum