“Munurinn nú í samanburði við fyrri ár er sá helstur að veðrið hefur verið miklu verra og sjólag erfiðara. Skipin eru orðin stærri, veiða í verra veðri en áður og ekki bætir úr skák sá skammi tími sem menn hafa til stefnu þegar það hillir undir lok loðnuvertíðarinnar.“

Þetta segir Vernharður Hafliðason, yfirverkstjóri hjá Hampiðjunni á vef fyrirtækisins, en mikið hefur verið að gera hjá starfsmönnum við nótaviðgerðir að undanförnu.

,,Menn rífa, festa í botni og fá í skrúfuna og ef skemmdirnar eru óverulegar þá bjarga þeir sér yfirleitt sjálfir. Í hinum tilvikunum er leitað til okkar. Oftast fáum við næturnar til okkar en við sendum líka menn á staðinn. Í vetur höfum við sent menn til að gera við nætur í Helguvík, á Vopnafjörð og á Akranes,“ sagði Vernharður en þess má geta að í gær var verið að gera við nótina hjá grænlenska skipinu Tasilaq sem rifnaði í brælunni í fyrrakvöldi.

Að sögn Vernharðs er mesta hættan á að loðnunæturnar rifni þegar skipin eru komin með þær upp að síðunni.

,,Algengast er að pokarnir eða pokaendarnir gefi sig þegar sjólagið er með þeim hætti sem verið hefur undanfarnar vikur og mánuði. Það er stöðug kvika og vont veður og átökin eru í samræmi við það. Köstin þurfa ekki að vera stór til að eitthvað gefi sig,“ segir Vernharður Hafliðason.

Sjá nánar á vef Hampiðjunnar .