Landssamband smábátaeigenda ætlar að birta lítraverð á eldsneyti á heimasíðu sinni þar sem þessar upplýsingar eru ekki aðgengilegar á dælum. Munur á hæsta og lægsta verði er 1,05%.
Það virðist færast í vöxt að ekki er sýnt verð á lítra þegar dælt er. Verðið kemur ekki í ljós fyrr en viðkomandi fær mánaðarlegt uppgjör. Það er skoðun LS að þessi afgreiðslumáti slævi verðvitund, þar sem flestir sem spurðir voru höfðu ekki hugmynd um hvert lítraverðið væri. Aftur á móti þegar þeir voru spurðir um hvað þeir fengju í afslátt stóð ekki á svari og það jafnan látið fylgja að þeir væru ánægðir með þá krónutölu. Það sem þar vakti athygli var hversu lítill munur var hjá hverjum og einum.
LS hefur af þessu tilefni ákveðið að birta lítraverð án afsláttar á heimasíðu sinni. Mismunur á hæsta og lægsta verði 23. október 2014 var 1,05%. Verðið var lægst hjá Skeljungi 162,10 með vsk. Verð hjá N1 er hálfu prósenti hærra 162,90 og hjá OLÍS kostar lítrinn 163,80 kr.
Félagsmenn eru hvattir til að bera verðið sem hér er birt saman við þann afslátt sem þeir hafa, segir á vef LS.
Lítarverð á litaðri skipagasolíu 23. október 2014 án afsláttar.
Skeljungur 162,10
N1 162,90
OLÍS 163,80