,,Við erum á síðasta holinu í veiðiferðinni og ég er að vonast til þess að aflinn í því verði um 100 tonn. Þá verðum við með alls um 450 tonn og það er ágætur skammtur fyrir vinnsluna á Vopnafirði,“ sagði Albert Sveinsson, skipstjóri á Faxa RE í samtali á heimasíðu HB Granda , en haft var samband við hann nú í hádeginu. Faxi var þá að veiðum djúpt austur af Hornafirði.

Að sögn Alberts hófust veiðar í gærmorgun en þá var eitt kast tekið í Seyðisfjarðardjúpi. Þar fengust um 70 tonn af svotil hreinni síld en þar sem ekki varð vart við lóðningar í næsta nágrenni var stefnan tekin suður með austurströndinni og á miðin djúpt austur af Hornafirði.

,,Það er nokkur fjöldi skipa hér á svæðinu og aflinn hefur verið alveg þokkalegur. Hér er hins vegar töluvert meira af makríl en síld og ég heyrði það frá öðrum skipstjórum að hlutfall síldar í aflanum hjá þeim í síðustu holum hefði farið alveg niður í 20%. Fiskurinn er nokkuð blandaður af stærð en hentar örugglega vel til vinnslu,“ sagði Albert Sveinsson en hann áætlar að um 12 til 13 tíma sigling sé frá miðunum til Vopnafjarðar.