Múlaberg SI landaði á Siglufirði á sunnudaginn bolfiski úr fyrsta túr á fiskitrolli eftir að hætt var að sinni á rækjuveiðum. Aflinn eftir þriggja daga veiðiferð var 65 tonn. Stór hluti aflans fór í vinnslu Ramma í Þorlákshöfn. Stærsti fiskurinn fór á fiskmarkaðinn á Siglufirði, að því er segir á vefnum siglo.is
Á vef Ramma hf. kemur fram að Múlaberg SI hafi hætt á rækjunni vegna dræmrar veiði. Reiknað er með því að skipið hefji rækjuveiðar aftur næsta vor.