Niðurstöður frá sameiginlegum uppsjávarleiðangri Íslendinga, Færeyinga, Norðmanna og Dana, sem farinn var á tímabilinu 1. Júlí til 3. Ágúst 2023, leiða í ljós að mun minna magn makríls mælist á leiðangurssvæðinu. Vísitala lífmassa makríls var metin 4,30 milljón tonn sem er 42% lækkun frá árinu 2022 og er minnsti lífmassi sem mælst hefur síðan 2007.
Meginmarkmið þessa árlega leiðangurs var að meta magn uppsjávarfiska í Norðaustur-Atlantshafi að sumarlagi en jafnframt að rannsaka vistkerfi og umhverfi sjávar. Leiðangurssvæðið var 2,4 milljón ferkílómetrar sem er 19% minna en síðasta ár þar sem ekki var farið inn í Grænlenska landhelgi og einungis suður að 62°N breiddargráðu í Íslandsdjúpi.
Meirihluti stofnsins í Noregshafi
Útbreiðsla makríls við Ísland í ár var minni en síðasta ár. Mesti þéttleikinn var fyrir sunnan land og var hann að finna bæði yfir landgrunninu og við landgrunnsbrúnina. Lítið mældist af makríl fyrir vestan land samanborið við 2022. Um 10,3% af heildarlífmassa makríls mældist í íslenskri landhelgi samanborið við 18,9% síðasta ár. Líkt og undanfarin ár var meiri hluti stofnsins í Noregshafi og þá sérstaklega norðaustan til.
Samkvæmt gervihnattagögnum var meðaltalshitastig í yfirborðslögum sjávar austan, sunnan og vestan við Ísland hærri í júlí en á sama tíma í fyrra og einnig yfir meðaltali síðustu 20 ára. Í Noregshafi var yfirborðshiti einnig yfir meðaltali síðustu 20 ára en undir meðaltali fyrir norðan Ísland.
Vísitala um magn dýrasvifs á hafsvæðinu í júlí við Ísland og í Noregshafi jókst samanborið við undanfarin tvö sumur og var álíka og langtímameðaltal leiðangursins síðan 2010.
Í leiðangrinum voru bergmálsmælingar einnig notaðar til að meta magn norsk-íslenskrar síldar og kolmunna en úrvinnsla á þeim mælingum er ólokið og verða þær niðurstöður kynntar síðar.
Niðurstöður leiðangursins fyrir makríl voru kynntar innan stofnmatsvinnunefndar Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) í gær. Þær eru, ásamt öðrum gögnum, notaðar við mat á stofnstærð makríls en ICES mun birta ráðgjöf um aflamark næsta árs fyrir makríl, norsk-íslenska síld og kolmunna þann 29. september.
Skýrslu um bráðabirgðaniðurstöður leiðangursins má nálgast hér.