Fiskaflinn í júnímánuði síðastliðnum nam rúmum 52.000 tonnum samanborið við 81.000 tonn í júní 2011. Þar munar mestu um minni uppsjávarafla en hann minnkaði úr 40.500 tonnum í 20.400 tonn milli ára. Þar af dróst makrílaflinn saman úr 25.000 tonnum í tæp 14.000 tonn.
Botnfiskafli dróst saman um tæp 9.100 tonn frá júní 2011 og nam tæpum 28 þúsund tonnum. Þar af var þorskaflinn rúm 12.200 tonn, sem er um 2.600 tonnum meiri afli en á fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 1.900 tonnum sem er 123 tonnum minni afli en í júní 2011. Karfaaflinn dróst saman um rúm 2000 tonn samanborið við júní 2011 og nam tæpum 2.700 tonnum. Um 4.000 tonn veiddust af ufsa sem er um 1.400 tonna samdráttur frá júní 2011. Annar botnfisksafli nam um 3.700 tonnum og dróst saman um rúm 2.000 tonn frá fyrra ári.
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júnímánuði, metinn á föstu verði, var 25,7% minni en í júní 2011. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 18,5% miðað við sama tímabil 2011, sé hann metinn á föstu verði.
Sjá nánar frétt á vef Hagstofunnar .