Fiskafli íslenskra skipa dróst saman um 15% á föstu verði í mars 2014 samanborið við marsmánuð árið áður. Í tonnum talið dróst afli saman um 54% og hefur mikill samdráttur í loðnuafla þar mest að segja en hann fór úr 157.000 tonnum í 36.000 tonn.
Botnfiskafli jókst í mars um 10% miðað við mars í fyrra. Aukning var í þorsk-, ýsu- og ufsaafla en karfaafli dróst saman miðað við sama mánuð í fyrra.
Þar sem magnvísitalan tekur mið af verðhlutföllum milli fisktegunda og botnfiskaflinn er verðmætari en uppsjávaraflinn er samdráttur aflans á föstu verði er mun lægri í prósentum talið heldur en samdráttur aflans í tonnum.
Sjá nánar á vef Hagstofunnar.