Á nýliðnu fiskveiðiári var fluttur út óunninn ísaður fiskur á erlenda fiskmarkaði með veiðiskipum og gámum að verðmæti 13,2 milljarða króna miðað við 17,8 milljarða króna á fiskveiðiárinu 2008/2009 að því er fram kemur í samantekt á vef Fiskistofu. Verðmæti útflutts óunnins afla dróst því saman um rúm 26% á milli fiskveiðiára.
Útflutt magn dróst einnig verulega saman, úr 58.978 tonnum á fiskveiðiárinu 2008/2009 niður í 38.201 tonn á nýliðnu fiskveiðiári eða um rúm 35%.
Af einstökum tegundum er flutt mest út af ýsu eins og undanfarin fiskveiðiár. Útfluttur ýsuafli á fiskveiðiárinu 2009/10 var 10.736 tonn að verðmæti 3,7 milljarðar króna en var 22.312 tonn fiskveiðiárið 2008/09 að verðmæti 6,5 milljarðar króna. Útflutningur á óunnum ísuðum þorski dróst saman á milli fiskveiðiáranna sem litið er til.
Útfluttur þorskafli fiskveiðiárið 2008/09 var 8.803 tonn að verðmæti 3,3 milljarða króna en var 4.837 tonn fiskveiðiárið 2009/10 að verðmæti 2 milljarðar króna. Þetta er samdráttur um rúm 45% í magni og tæp 39% í verðmæti. Samdráttur var í útflutningi á óunnum ísuðum fiski í öllum helstu tegundum. Mestur er samdrátturinn í keilu eða rúm 73% í magni.
Minnstur var samdrátturinn í karfa eða um 15%, úr 12.183 tonnum í 10.352 tonn á síðasta fiskveiðiári og er nú útflutt á þennan hátt nánast sambærilegt magn af karfa og ýsu.