Aflaverðmæti í september 2015 voru rétt um 12 milljarðar króna, 9,6% minna en í september 2014 þegar verðmætið var rúmir 13,3 milljarðar, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofunnar.
Verðmæti uppsjávarafla minnkaði mest, eða um 44,6%. Verðmæti botnfiskafla jókst um 15,5% úr 7,3 milljörðum króna árið 2014 í 8,4 milljarða í september 2015.
Á árstímabilinu október 2014 til og með september 2015 jókst heildaraflaverðmæti um 11,1%. Munar þar mest um 9,8 milljarða króna verðmætaaukningu í botnfiskafla og 3,7 milljarða króna aukningu í verðmætum uppsjávarfisks.