Samkomulag náðist ekki á samningafundi um stjórn makrílveiða sem lauk í Álasundi í Noregi í dag. Enn ber mikið í milli aðila. Viðræðum verði haldið áfram í Reykjavík dagana 19. og 20. apríl næstkomandi.

Markmið fundarins var að leita samkomulags um framtíðarstjórnun makrílveiða í Norðaustur-Atlantshafi, en eins og kunnugt er hefur ekki náðst samkomulag um heildarstjórnun veiðanna síðastliðin ár.

Á fundinn mættu samninganefndir allra strandríkjanna, þ.e. Evrópusambandsins, Færeyja, Íslands og Noregs en auk þess var Rússum boðið til fundarins. Á fundinum fóru aðilar yfir mögulega framtíðarstjórn veiða, þar með talið skiptingu heildarafla milli ríkjanna en samkomulag um hlutfallslega skiptingu er forsenda fyrir því að heildstæð stjórnun veiðanna náist.