Kleifaberg, frystitogari Brims hf., er á leiðinni heim úr Barentshafi eftir velheppnaðan túr. Að sögn eins skipverjans nam aflinn um 1.000 tonnum upp úr sjó, þar af voru um 700 tonn unnin í roðlaus og beinlaus flök. Taldi hann í samtali við Fiskifréttir nokkuð víst að aldrei áður hefði svo mikill afli farið í slíka vinnslu í íslenskum togara í einum túr.

Að minnsta kosti er víst að gríðarleg vinna liggur að baki slíkum afköstum. Aflaverðmæti úr túrnum er áætlað um 300 milljónir króna. Veiðarnar fóru fram í rússneskri lögsögu Barentshafs, austan við Gráa svæðið svokallaða. Búist er við skipinu heim nú í vikulokin og hefur túrinn þá tekið rúma 28 daga, þar af tekur siglingin fram og til baka tæpa 10 daga í heild. Aflinn var nær eingöngu þorskur.

Því má svo bæta við til gamans að áhöfnin á Kleifaberginu hefur lengi haldið úti hljómsveitinni Roðlaust og beinlaust, troðið upp á tónleikum og gefið út geisladiska með tónlist sinni.