Nú hafa um 400 manns skráð sig á Sjávarútvegsráðstefnuna 2013 og gera skipuleggjendur ráð fyrir um 450 manns sem er metþátttaka.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setur ráðstefnuna klukkan 10 á fimmtudagsmorgun á Grand Hótel Reykjavík og síðan flytur Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra ávarp.
Á vef ráðstefnunnar segir að hægt að skrá sig á netinu fram til klukkan 16:00 miðvikudaginn 20. nóvember. Þeir sem eru seinir fyrir eins og oft vill verða mæta snemma á ráðstefnustað Grand Hótel Reykjavík en skráning hefst þar klukkan 09:00.
Nemendur við sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri eru með vefsíðu þar sem fréttir verða af ráðstefnunni. Slóðin er þessi: https://www.facebook.com/sjavarutvegsradstefnan
Dagsskrá ráðstefnunnar má sjá HÉR