Fyrstu sex mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 313 milljarða króna, þar af nam útflutningur sjávarafurða 132,3 milljörðum króna, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar.


Fyrstu sex mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 11,0 milljörðum eða 3,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,4% minna en á sama tíma 2011.

Sjávarafurðir voru 42,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 21,1% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski, fiskimjöli og heilum frystum fiski.

Útflutningur á áli og álafurðum nam um 115 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins.