Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, hefur ákveðið að leggja til meiri aflaheimildir vegna verkefnisins „efling sjávarbyggða“. Nú þegar eru 6 byggðalög sem taka þátt í verkefninu, en þau eru skilgreind sem sjávarbyggðir í bráðum vanda. Byggðastofnun hefur skilgreint fjórar sjávarbyggðir til viðbótar í bráðum vanda: Djúpavog, Þingeyri, Hrísey og Breiðdalsvík.
„Við höfum nú þegar lagt 1.800 tonn til þessa, en þær verða nú auknar um 1.100 tonn. Það háttar víða þannig til á landsbyggðinni að afkoma fólks byggist að miklu leyti á því sem úr sjó er dregið og án útgerðar og vinnslu minnkar byggðafesta. Byggðastofnunarverkefnið er ný nálgun sem mér finnst spennandi að þróa áfram, aflaheimildum er ekki úthlutað til einstakra skipa eins og almenna reglan er, heldur sérstakra uppbyggingaverkefna,“ segir sjávarútvegsráðherra.
Sjá nánar á vef atvinnuvegaráðuneytisins.